The Hettes are all over the place
26.09.2005 23:24:12 / D_hette

ný síða

Dóra var að opna nýja síðu...endilega kíkið.

 www.blog.central.is/dorag


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 22:14:43 / D_hette

darara dírírírí vertu velkomin heim.....

jæja...þetta verður eitt af fáum bloggum sumarsins...ég er allavegana komin uppí Saurbæinn fyrir fullt og allt...eða allavegana í sumar...verð að vinna í Laugum í Sælingsdal..kíkið endilega á mig ef þið eigið leið framhjá.

Djammið..já...ég , gísli og finnur höfðu partý of 3 á föstudaginn heima hjá ömmu hans gísla...skelltum okkur í ýmsa drykkjuleiki, brenndum popp, elduðum ommilettur og fleira í þeim dúr....röltum svo uppí lágmúlann frá langholtsveginu til að kaupa egg um hánótt...drápum orma, eltum gæsir (eða endur eða eitthvað), klifum tré, fundum hjól og þetta venjulega. Eyddum svo 4000 íslenskum krónum í eitthvað drasl í 10-11 og tókum leigubíl til baka...vorum of þreytt til að elda  þannig við fórum bara að sofa.

á laugardaginn skelltum við okkur í Hreðavatnsskála á ball.....ég var, svona til tilbreytingar, driver í þetta skiptið og með í för voru kiddi og finnur. ballið var hið ágætasta...hittum ýmsa góða...ég, siggi g og helga tókum einsöng fyrir fjarskyldan ættingja okkar (magna í á móti sól) við litlar undirtektir. svo gerðum við Helga ítrekaðar tilraunir til að kynda undir slagsmál einnig við litlar undirtektir. en hápunktur kvöldsins var að komast að því yfir hvern ég helti hveiti yfir hér forðum daga í pítsubakstrinum hjá kidda..ég hef ekki getað sofið rótt hingað til og er þetta mikil sálarró.

í dag fórum ég, villi, finnur og kristján hans í 3ja tíma sjóferð á Zodiaknum hans villa og var það alveg þrælgaman. stefnum nátlega á að fara á honum til eyja í sumar. lappinn kemur líka til greina..kemur sterkur inn.

æjj okey...nenni þessu ekki lengur

Dóra


» 61 hafa sagt sína skoðun

29.04.2005 00:27:18 / D_hette

ég átti lakkrísbindi og skyrtan hún var skjannahvít....

salut....ætlaði bara að láta folk vita að ég var að opna nýja myndasíðu...stal hugmyndinni af henni Birgittu og biðst ég forláts:lol:...en allavegananana þá má finna þessa forlátu myndasíðu hérna lengst niður og fyrstu dyr til vinstri...þá má kenna ýmissa grasa gamals og nýjs...njótið bara vel.

Svo er einnig plönuð fjölda-drykkja laugardaginn 14 mai fyrir utan Háskola Íslands í gráum patrol á 38" kl.17:00 að staðartíma til að fagna próflokum..þeir sem vilja vera með skrái sig hér..hámarkssætafjöldi er 4 en öllum er velkomið að slá upp tjaldbúðum fyrir utan, þannig að hafið hraðar hendur..fyrstir koma fyrstir fá8)

okeee..ég þarf að mæta sprækur sem lækur og fimur sem limur i ensku prof á morgun þannig ég segi nu bara FLOTTUR JAKKI...8|

DÓra 


» 68 hafa sagt sína skoðun

25.04.2005 14:51:27 / D_hette

er ég kem heim í búðardal...

 Sálin í Búðardal:  ég brunaði vestur um miðja föstudagsnóttina og steinsofnaði um leið og ég kom og við sváfum mest allan laugardaginn líka. Fórum svo í stuttan reiðtúr og skutum smáfugla okkur til skemmtunar áður en við héldum í matarboð til kidda. Þar fengum við jarmandi læri að hætti Sigga hjartar og  meðlæti sem var alveg þrusu gott. Svo var áfengið teigað og fleiri og fleiri bættust í hópinn og innan skamms var troðið út fyrir dyr. Um 11 var svo haldið á ballið sem var örugglega það fjölmennasta í sögu búðardals. Í röðinni var margt um manninn og mörg voru málin rædd. Ballið var hið skemmtilegasta og lenti ég á trúnó með hinum ýmsu:) Ræddi ýmis málefni við Birgittu, Helga og Dabba sem eru best geymd á milli okkar:) hehehe....en nóg um það

Þegar ballinu var að ljúka var ég dregin af dansgólfinu því Finnur hafði brákast á putta. 'Eg  drösslaðist  með hann uppá sjúkrahús, skildi hann eftir þar fyrir utan og hljóp útum allan bæ að leita að lækninum. Eins ölvuð og ég var,í skóm sem voru altaf að detta af mér tókst mér samt að hlaupa bæinn á enda á mettíma, spurja 10 manns hvar læknirinn væri, aldrei fá sömu svör, banka uppá 3 húsum , hlaupa aftur uppá sjukrahús, sækja Finn, hjálpa honum niður bratta gras brekku, detta sjálf niður hana, komast heim til kidda, enginn heima, leggja finn fyrir utan, hringja i pabba hans, loksins kom fólk heim....gaf okkur sæng og bjór. Meðan við biðum eftir pabba hans þá skelltum við finni uppí rúm. Í svegnd mikilli ráfaði ég inni eldhús, þar var frönskugerð í hámarki. Eg og önnur stúlka að nafni Soffia tókum svo uppá því að baka pizzu úr öllu nærliggjandi hráefni og öðru efni...það sem í henni var: hveiti, egg, smjörliki, bjór, vatn, mjólk, lyftiduft , meira lyftiduft og ymislegt annað.T'ókum auðvitað FEL-stylinn á þetta. Hrærðum þetta allt saman með stórum brauðhníf. 'utkoman varð frekar kekkjótt en það stoppaði okkur ekki. skelltu þessu á bökunarplötu og inní ofn á hæsta straum. Þegar bakan var rétt svo byrjuð að bakast þá þurfti ég þvi miður að kveðja teitið því tengdó voru komnir. En daginn eftir var eldhúsið víst í rúst og hveiti utum allt og bakan var vist með aðeins of miklu lyftidufti að hún fyllti nánast uppí ofninn og var grjóthörð.

Daginn eftir gerðum við litið annað en að borða popp og sofa...lögðum af stað heim um 11 leytið um kvoldið...súkkan var aðeins rafmangslaus en finnur var enga stund að kippa þvi i liðinn. Svo rétt áður en við komum að göngunum þá voru þau lokuð....hvaða steingelda fífl ákvað að loka þeim og setja bara skilti 10 metra frá þeim...fávitar. En við komust þó heim finally.

Þetta var æðisleg helgi og ég kynntist fullt af liði útum allt en get engan vegin talið upp alla hérna...eitt er þó vist að þetta var fyrsta og síðasta partyið sem kiddi heldur í þessu húsi:)

Dóra FEL kveður


» 121 hafa sagt sína skoðun

20.03.2005 16:00:25 / D_hette

búgíbúgí

Ég, Svavar, Kári og Valdi fjölmenntum uppá sogavegi í svítunni okkar Finns á laugardagsaftanið. Drukkum, spjölluðum og tókum á hinum ýmsu málefnum líðandi stunda.  Héldum eftir það í afmælið hennar Söndru....komum heldur seint og sötruðum bollu afganga uppúr skálinni og ég snæddi mér á einhverju matarkyns úti garði sem leit út eins og 17 daga gömul kramin fermingarterta...hef ekki enþá komist til botns í því hvað þetta var.  Eftir drykklanga stund fórum ég og strákarnir á hestamannarra fylleri i einhverju hesthúsi í kópavogi...þar hitti ég ýmsa góða...marga ur moso og FÁ. Hitti líka loðnasta mann sem ísland hefur alið....Rúnki vill ekki láta til nafns síns getið en hann æfði sund i mörg ár....svona verða þeir víst. Matti og Sigríður vinkona hans voru mjög dugleg að splæsa á barnum..takk krakkar:)  Gef stemmingunni 3 af 5 stjörnum og snobbinu í liðinu 6+.

Eftir ágætis teygun kom Kári og skutlaði okku niðrí bæ. Þar hittum við Írisi systur hans Svavars og Silju vinkonu hennar....alveg heljarins djammarar:) fórum á Sólon...þurftum ekki einu sinni að bíða i röð...maður þekkir fólk sem þekkir fólk. Tjúttuðum þar heillengi og röltum svo á Glaumbar þar sem var fátt um manninnn....hitti þar tvífara minn hana Guðnýju(ekki Dóra 2:)) og áttum við gott spjall inná klósetti...svona eins og kvenfólki sæmir

Kl.var að slá 6 þegar ég , Valdi og Silja drösluðust inná Amterdam sem var altílagi. Svo hitti ég ýmsa úr mosó(þetta lið er allstaðar) og rifðjuðum upp gólden móment frá unglingavinnunni  í den.....æj vó ég hitti svo svakalega marga að ég nenni varla að telja alla upp..þetta var bara geggjað kvöld:) var að skríða uppí rúm um 8 leytið áðan en er þetta líka eldspræk núna:) enda líka þessi bongóblíða í mosó...sól og það bærist varla hár á höfði´í þessu logni...

oki....ætla að ná mér í smá tan fyrir páskaferðina:)

Dóra


» 104 hafa sagt sína skoðun

13.03.2005 16:47:27 / D_hette

vúhú

frábært djamm af baki......eða segir maður að baki?? en anyways.....á laugardaginn fórum ég ,Kristrun og Gisli í innflutningspartý hjá Einari í moso og þar var saman komin helstu jeppaáhugamenn sunnan fjallla......drukkum og borðuðum doritos i massavís og vil ég þakka Einari fyrir alveg einstaklega gott snakk og ídýfan var engu síðri:) eftir rúmlega klukkutíma át héldum við 3 í 20 ára afmælið hennar Írisar gellu á Pravda....þar hitti ég fullt af gomlum Gaggo Mos félögum og má þar hæst nefna: Hörpu, Katrínu, Ninu, Agga, Heiðrúnu, Gauja, Stebba og ýmsa fleiri góða. Skemmtun var í hæsta gæðaflokki....og var þetta topp afmæli í alla staði:)

Um miðnætti skokkuðum ég og Gísli út til að fá okkur pitsu en var svo ekki hleypt inn aftur vegna ungs aldurs..pfifff....álpuðumst inná Victor þar sem inni sátu 12 manns. Þangað komu svo Sandra, Kristrún og Hanna og einnig hittum við Erdogan og við tókum nokkur spor á dansgólfinu. Eftir vel sveitta útreið á gólfinu fórum við á Glaumbar..þangað komu svo Villi, Einar,Hjörtur, Svavar, Kári., Atli, K.Hansi, Ásgeir félagi og fleiri. Dansinn dunaði þar langt fram eftir nóttu og ég var orðin heldu þreytt um 5 leytið held ég og fór með Ásgeiri á Pizzusneiðahúsið og við fengum okkur pitsu og vöfflu í eftirrétt....svo skultuðu Sæbó, Svavar og Atli mér heim þar sem ég svaf ein því Finnur minn var fjarri góðu gamni:cry:

Með góðfúslegu leyfi Írisar skellti ég inn nokkrum myndum frá teitinu hennar góða en allar myndirnar má finna HÉR

takk bæ


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.03.2005 00:44:23 / D_hette

sálin er ömuleg

sælir...

Þynnka ofaná þynnku núna...hef ekki farið úr rúminu í allan dag...bara legið uppí rúmi eins og dauð skata og látið greyið kallinn stjana við mig...þessi elska:D..aðeins staðið upp til að kasta vatni og öðru...eða jú kíkti aðeins með Heidi minni til Öbbu músla-mömmu..bara 3 vikur í barnið....og við höldum varla vatni. Við bindum að sjálfssögðu vonir við það að hann verði strákur en nafnið var ákveðið áðan yfir einhverjum lítt vinsælum sjónvarpsþætti og vonum núna að hann verði hún því þá hæfir nafnið Hildur Vala betur.

Átti annars hið ágætasta djamm í gær á árshátið FÁ.....fór ásamt fríðum förunautum...Finni, Rakel, Ragnhildi og Dabba litla. Skemmtun var í gæðaflokki sem og maturinn...laumudrykkjan gekk einnig vel..kannski aðeins of vel.. eftir matinn fórum við heim til Rakelar og Garðars og þar vorum við ásamt Rósu hans Dabba, Svavari, sævari, kára og kó. Drykkjuleikir voru að sjálfsögðu spilaðir og var allt til staðar sem prýða ætti gott partý...æla, dauði, kynlíf inná baði, ömulegt merkikerti og ýmislegt í þeim dúr. Eftir það ´var haldið á ballið sem var ömulegt:) Vil líka þakka mínum æðislega kærasta fyrir að vera réttur maður á réttum tíma:) ég elska þig Finnur;)

takk fyrir og góða helgi Helgi!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.02.2005 15:44:54 / D_hette

j

komið að vikulegum skrifum minum þar sem ég fer yfir atburði helgarinnar i grófum dráttum..

Föstudagurinn i hnetuskurn:  Rúmlega 10-12 manns voru samkomin i erfðardrykkju í skúrnum hjá mér því ég er að fara að flytja...jájá..ekki lengur mosópakk eða mosósveitalúði heldur grafarvogs gella. Teitið stóð fram til 1-2 en þá var haldið niðri bæ...eitthvað splittaðist hópurinn og fólk fór i sínum hópum down town. Förinni var heitið á Pradva þar sem stigin var trylltur dans....eftir nokkrar heimsoknir á barinn ákvað Finnur að halda einn á leið á vit ævintýranna...með lykla og smáklink í vasanum að vopni hélt hann útaf Pravda og fannst ekki  fyrr en 2 timum seinna.....öllum er enn hulin ráðgáta hvar hann var i 2 tima. Eftir að hann fannst gátum við loks andað léttar eftir 2 tima leit..ég og Jóný keyptum okkkur heila pizzu og skokkuðum með hana inná Palace þar sem við dönsuðum blöndu af riverdans-stera-útúrspíttuðum-og-útursniffuðum-kókain-dansi við miklar vinsældir annara dansgesta:) fórum heim um 7 leytið eftir athyglisvert djamm

laugardagurinn: eftir mikla og þykka þynnku sagði ég skilið við áfengisbölina og frelsaðist....ég gerðist bankastjórafrúar driver á jeppanum hans finns og á milli þess að skutla fólk sat ég heima með pizzu i annarri, pizzu i hinni og spilaði kapal:)

það sem læra má af þessari helgi er að drepast ekki nálægt Dabba og Dabba litla og ekki heldur nálægt Finni og Crazy Clue:)

Tak skal du har

Dóra


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.02.2005 15:26:22 / D_hette

Dóra talar

Ákvað að brjóta odd af örlæti mínu og hripa niður nokkur orð um mína síðustu daga. Eftir jeppaferðina góðu í byrjun januars hefur samt litið gerst og litið verið um djamm..átti eitt mjög gott á bóndadeginum..en hún er of löng til að segja frá hérna:) Dagarnir fljúga frá manni og strax kominn februar....einn mánuður búinn af árinu og ég hef ekki afrekað neitt bloggvænt...í raun ekki afrekað neitt yfir höfuð:(

Síðasta helgi var alveg glimrandi góð að vísu..tók örstutt edru djamm með Heidi minni á föstudaginn. Fór svo i nýju vinnuna mina á laugardaginn....KEBAB...allir þangað...kebab og kók á 599 kr.(tek fram að ég var neydd til að setja þetta inná hérna). Strax eftir vinnu var brunað vestur uppí Saurbæ...já....fór ásamt Finni og fjölskyldunni hans á alvöru sveitamanna Þorrablót. usss...það gerist varla betra..þó ég hafi ekki þekkt nema 0,5% þarna inni og skilið 10.unda hvern lókal brandarann þá var þetta æðislega gaman...drukkið og borðar eins og sveitafóllki sæmir og svo dansað fram á kolsvarta nótt...Finnur fékkst loksins á dansgólfið um 3 leytið eftir margar ítrekaðar tilraunir til að lokka hann á gólfið..og vil ég hér með þakka þeim sem áttu í hlut að hjálpa mér:) og eftir að þangað var komið var ekki aftur snúið..við dönsuðum tangó, vals og frumsamin dans eins og við hefðum ekki gert annað og áttum gólfið, það komst enginn í hálfkvist við okkur:) fólkið var meira að segja farið að rýma til fyrir okkur á gólfinu...held samt að það hafi verið utaf þvi að við vorum i sífellu að rekast i fólk og flækjast í hárinu á því:)

úps..tími að byrja.......

skrifa meira á eftir...

Dóra


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.01.2005 22:06:05 / D_hette

SÆÆLLL....

komið að lang þráðu bloggi....síðan egs. ferðin var farin hefur ýmislegt gerst og fleira ekki gerst...átti góð jól í faðmi fjölskyldunnar og enn betri áramót. Gleðin byrjaði heima hjá mér með smá samkomu í skúrnum...saman voru komin ekki verrri manneskjur en Finnur, Gísli, Sandra og Kristrún...ölið var teygað í klukkutima og svo var haldið á áramótaball sálarinnar á broadway. Skemmtum okkur feikivel og gleðin náði hámarki er ég og Finnur gerðumst aðal grúppíur sálarinnar við mikinn fögnuð hljómsveitarinnar. Hittum ýmsa góða og aðra síður góða en nenni ekki að telja alla upp. Skemmti mer gríðar gífurlega vel og vil þakka Pizza Hut fyrir að vera til staðar á nýjársmorgun kl.6...takk.

1.jan var allur i blörri og það var víst einhvur þynnka að ganga....en svo um morgunin 2.jan tók gleðin völdin á ný. Fór þá ásamt 15 öðrum í 2ja daga jeppaferð uppá hveravelli og kerlingarfjöll...eða svo átti það að vera....endaði með 3ja daga veður teppingu á hveravöllum...í ferðinni kenndi ýmissa grasa en það myndi taka mig margar blaðsíður að skrifa um allt.....eftirfarandi orð tilheyra ferðinni á einn eða annan hátt...þið getið púslað þessu saman sjálf.......stripp, stór brjost, the warden, tourette, uppköst og niðurköst, snjókarlaklám, gulur snjór, fokking mjó brú, rauð bök, næstum 2ja manna orgia, stripp no.2, snjóbuxna mök, ólykt og mikið af henni, .......ýmislegt fleira átti ser stað sem engan vegin er hægt að útskýra með orðum...þetta var frábær ferð i alla staði og samankomin eðal(grand) mannskapur...þeir sem vilja sjá myndir frá ferðinni geta séð þær hérna á síðu HFH.

Takk pizza hut aftur og allir þeir sem voru i ferðinni ógleymanlegu...

.....já og gleðilegt nýtt ár.

Dóra


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.12.2004 15:57:41 / D_hette

This is for the niggaz I met in egs.city(læriði islensku ef þið viljið lesa þetta)

Hvernig væri nú að hvíla aðeins þessa slagsmála umræðu...ég lærði gott einkunnarorð á egilsstöðum núna um helgina sem á vel við... "make pizza, not war" já eins og glöggir geta getið ser um þá skellti ég mér til egilsstaða um helgina á Kónga-lima fund......á föstudaginn var horft á Idolið og svo var grátur og gnístur tanna yfir Herra Ísland....þó að fallegasti karlmaðurinn á íslandi í dag hafi nu ekki einu sinni tekið þátt í þessari keppni þá er ég mjög ósátt með úrslitin..en ég tjái mig ekki meira um það.

Laugardagskvoldið var svo toppurinn..drykkjan var tekin með krafti og fjölmennt heima hjá sindra og davíð. Þaðan lá leið vel ölvaðra unglinga niðrá KHB þar sem meiri drykkkja í boði Egilsstaðabúa tók við. Stemmarinn þar var engum líkur enda helt Andri Bergmann trúbbi uppi góðu stuði.  Eftir lokun vorum við með óútskýranlegum hætta alltíeinu komin uppi valaskjálf.  Eftir stutt stopp þar var ég;einnig með óútskýranlegum hætti, komin uppi bil með 2 strákum sem ég þekki ekki og þeir þekktu greinilega ekki hvorn annan heldur.  Tókum mjög hljóðlátan og vandræðanlegan rúnt um bæinn, bilsjtorinn gaf okkur bjór og henti okkur svo aftur ut hja valaskjálf.  Þar var ekki sálu að sjá og var ég farin að óttast um líf mitt...rölti með ókunnuga manninum bakvið Valaskjalf í örvæntingar leit að Önnu minni eftir að strákur svaraði sífellt i simann hennar. Fundum við hana og gerðum stutt stopp þar og 5 minutum siðar vorum við stödd i eftir partyi........ferðir milli staða reynast okkur enþá óráðin gáta.

Eftir að hafa neitað að fara heim að sofa fyrr en ég fengi mina pizzu eins og gengur og ggerist í RVK eftir gott djamm samþykkti ég að fara ásamt nokkrum öðrum heim til eins gaurs að baka pizzu. Já við bökuðum pizzu frá grunni enþá vel ölvuð kl.6 á sunnudagsmorgni. Eg vil einnig kenna olvun um það að það gleymdist að setja ger og notaður var bjor i stað vatns. Pizzan varð nu ekki verri fyrir vikið...tja. Svo var spilað Poppuntks spilið langt fram eftir morgni eða þar til ég og Sindri rústuðum sjálfum austurlandsmeisturunum.

Svo átti ég góðan þynnkudag daginn eftir og um kvoldið var haldið heim á leið.

Vil þakka þeim fjölmörgu sem komu að þvi að gera þessa helgi að frábærri og velheppnaðri helgi en þó serstaklega Önnu Guðlaugu og Soffíu Tinnu!!

Myndir munu vonandi koma inn bradum!!!!

Dóra......hefur stækkað siðan siðast


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2004 20:39:51 / s_hette

Strákar eiga ekki að berja stelpur!

jæja, gott fólk!

Við erum búnar í prófum!! :)

Mig langar alveg rosalega að deila helginni með ykkur! Það var þannig að við byrjuðum að drekka heima hjá góðum félaga okkar ég, D_Hette, Guðrún Marta, Sandra, Finnur og fleiri góðir... Svo þegar ölvun var farin að herja á fólkið ákvaðum við að drífa okkur niðrí bæ, ferðinni var strax heitið á Pravda en þar var nú bara stutt stoppað og drifum við okkur upp á Vegamót... Eins og þið flest vitið þá er 22 inn og vorum við ekki með skilríki, D_Hette var eitthvað efins vegna klæðnaðar, en Guðrún var ekki lengi að redda því, D_Hette skellti sér í alltof lítinn leðurjakka, okkur var hennt inn og hvergi verið jafn velkomnar! Tókum við margar sveiflurnar og geiflurnar.. Ég man ekki alveg hvert við fórum eftir Vegamót, en það sem ég man var að við hittum strákana sem voru með okkur í partýinu og ætluðum við að hitta minn fyrrverandi fyrir utan Sólon vegna þess að ég fékk skilaboð frá honum sem í stóð: hæ krúttið mitt, hittu mig á sólon og taktu endilega Kidda með þér...HeHe... Við ákváðum nú að hitta kauða og kanna hvað hann hafði að segja.. Þegar á staðinn var komið byrjaði ballið! Allir urðu alveg crazy! eða þar að segja ég, D_Hette, Guðrún, my X, Atli félagi hans og fleiri... Gæinn var eitthvað að öskra á mig og eitt að því sem hans sagði var viltu ekki bara slá mig og vitið menn ég komst ekki hjá því að slá hann þar sem hann grátbað mig um það.. D_Hette tók sér góðan tíma til þess að miða á hann og svo kom líka þessi dúndra frá henni beint í fésið á gæjanum og þá var bara ekki aftur snúið, félagi hans var búinn að hringja í 40 manns og biðja um aðstoð! ÉG TEK ÞAÐ FRAM AÐ VIÐ VORUM 4 STELPUR OG 4 STRÁKAR SEM GERA EKKI FLUGU MEIN! en jújú þessir stóru gæjar þurftu nú hjálp! við stelpurnar erum líka á við 40 manns!:haha: Þegar gengið mætti á staðinn var öskrað: Þarna er Sjöfn og hennar bræður! (ég á tvo bræður, annar 8 ára og hin 20! jújú við erum djammarar en alveg róleg þessi átta ára er ekki byrjaður!) Finnur var kýldur og hann greyið stóð bara og horfði á gæjann og skyldi ekki hvað var í gangi... Svo var ég eitthvað að þenja raddböndinn eftir að einn gæinn sagði mér, DRULLUPUSSUNNI að drulla mér í burtu, spurði mig svo hvort hann ætti að berja mig og ég öskraði JÁ! hann sagðist nú ekki berja stelpur, í þessum töluðu orðum kom annar gæi hlaupandi og ýtti á axlirnar á mér þannig að ég flaug í orðsins fylstu merkingu á hausinn og lá þar í dá góðan tíma svona aðeins að átta mig á málunum.. Þeir henntu D_Hette líka í jörðina og munaði engu að hún myndi skella hausnum í steyputyppi! Einnig spörkuðu þeir í D_Hette, kyldu mig í magan og öxlina, rifu í hárið á Guðrúnu og reyndu að hrinda henni og kyldu hana í magan og svo var Finnur kýldur nokkrum sinnum og sparkað í hann.... Ég helt að það væri regla hjá svona "Stórum gaurum" að berja ekki STELPUR en jújú... Þetta átti að vera próflokadjammið okkar en svona endaði það líka vel :cry: neinei, D_Hette græddi heimsálfu á lærinu á sér, Guðrún Marta fékk bara enn fleiri aðdáendur vegna þess að í miðjum slagsmálum og hótunum ákvað gæinn að hætta að æsa sig og spyrja hana um númerið! en það var nú ekki gefið upp, ég er bara ennþá með það orð á mér að ég sé drullupussa(reyndar áttuðu sumir sig), Finnur er bara sár yfir ullarsokkunum og pítsunni... Allt er gott sem endar vel..:P


» 42 hafa sagt sína skoðun

06.12.2004 12:53:19 / D_hette

Titill

Jæja...við þurfum ekki að slást og rífast um það hver sé meiri ljóska því samkvæmt könnunninni er fólk einróma sammála um að við séum báðar ljóskur:) Við deilum þessum titli og þá eru allir sáttir...eða þar til Sjöfn kemur næst með ljóskustæla:)

Við erum núna í óðaönn að læra fyrir próf og huga að karlpeningnum og höfum haft lítinn tíma fyrir blogg og önnur hobbý.  Náðum samt aðeins að lyfta okkur upp um helgina..en þó í sitthvoru laginu að þessu sinni en vorum samt 3svar í 30 metra fjarlægð án þess að hittast.  Mín var frekar friðsamleg og fór aðallega í það að sinna skutl þörf fulls fólks. ...þar á meðal henni Heiðbrá...þessi elska er alveg yndisleg í glasi..sem og ekki í glasi...ég pikkaði hana blindfulla uppí á laugarveginum og hún vildi fá sér að borða einvher staðar en tók alfarið fyrir það að fara á B.S.I(The hettes hang out) og tók ekkert annað í mál en að fara á E.S.I.....say  no more.

Svo var ég í þvi að skutla kallinum og félögum hans niðrí bæ...svo eftir nánst 2ja tíma ferðalag að miðbænum(sem ætti tæknilega séð að taka 7 min) en förum ekki nánar í það..þá hættu allir við að fara niðrí bæ...slappt lið:)

þetta er stutta útgáfan af annars æðislega skemmtilegri helgi....

Sjöfn..nú er boltinn hjá þér og við bíðum spennt eftir þinni djammsögu..því ég er ekki að nenna að blogga lengur......

Dóra...


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2004 14:19:49 / s_hette

Kannske bara..

Helgin fór í það að vera brjóstarhaldaralausar, ómálaðar, borða og glugga í námsbækur þess á milli. Þetta var mjög erfið og döpur helgi hjá The Hettes, við tókum nú samt einn ef ekki tvo laugara. Við eyddum ekki miklum tíma í að skipta um föt, þar sem við fórum bara í náttfötunum en fórum þó í skykkanlegri peysur. Við vorum mjög vinsælar þetta kvöld þar sem mjög margir grátbáðu okkur um að fá að fljóta með niður laugarveginn, en þar sem þetta voru bara smápjakkar undir aldri keyrðum við bara yfir tærnar á þeim og læstum hurðunum. Við sáum svo aumar á einum yngispilti sem var nær dauða en lífi, fékk hann að sitja í hjá í smá tíma og lofaði hann okkur öllu fögru og lofaði að þegja á meðan við sungum hástöfum með henni Brandy okkar, en hann stóð ekki við stóru orðin og byrjaði hann að öskra nafn sitt og vildi alveg óður fá að vita okkar, þegar við kynntum okkur sleikti gæinn á okkur hendurnar. Við reyndum allt sem á okkar valdi stóð til þess að fá manninn úr bílnum þar sem hann var farinn að fækka FÖTUM, svo loks félst hann á að fara þar sem hann sá vini sína á göngu, þeir vildu ekkert með manninn hafa frekar en við, en ákváðu þeir þó að bíða eftir honum. Hann þurfti að sjálfsögðu að byrja á því að klæða sig í fötinn og eins sótölvaður og hann var þekkti hann ekki muninn á sínum jakka og jakkanum hennar S_hette. Maðurinn var heil lengi að bakslast við að reyna að troða sér í jakkan, svo allt í einu uppgötvar hann með skelfingu að hann átti ekkert í jakkanum og hljóp útúr bílnum og kemur ekki meira við sögu.

Á mánudaginn gerðum við líkt og hvern annan mánudag hjá okkur að taka einn laugara og syngja hástöfum. D_hette hafði grafið upp GAMLAN geisladisk nánar tiltekið pottþétt 1 og var ekki annað hægt en að skella upp pimp sólgleraugunum, rúðunum niður, græjunum í botn og taka nýlærðan steradans niður laugaveginn, en því miður gott fólk þá festist sá atburðu ekki á filmu þar sem við vorum ómyndarlegar.

Á þriðjudaginn gerðum við líkt og hvern annan þriðjudag að taka ókunnugt fólk fyrir og elta á röndum á bílnum okkar eins og við séum verstu krimmar. Skelltum við upp dulargervinu sem er sokkabuxur á höfuðið, pimp sólgleraugu og leikfangabyssur í hægri hönd. Gerðum við einn alveg skíthræddan í gær, hann þóttist svaka svalur og skipti í sífellu um akrein til að klekkja á okkur, svo prufaði hann að keyra á 20 á Sæbrautinni, en ekkert gekk! svo varð greyið alveg úrræðalaus og stoppaði bílinn á miðri götunni með neyðarljósin á:haha:, við stoppuðum fyrir aftan hann og skelltum okkar neyðarljósum á. Og biðum við þar í nokkrar mínútur, þar til viðkomandi opnaði hurðina en þorði þó ekki að koma út. Við settum svartar úlpur yfir höfuðið á okkur og brunuðum framhjá greyinu, þar sem við höfðum margt mikilvægara við tímann að gera. En vitið menn litla greyið ákvað að reyna að klekkja á okkur en við vorum ekki lengi að stinga þá af, botnuðum kaggan og þrykktum yfir eina hraðahindrun, en þar sem við erum á mjög góðum hraðahindrunarbíl var þetta ekki mikið mál fyrir okkur en greyið flaug yfir og það neystaði undan bílnum hjá honum. Við stungum þá af innan við mínútu nánar tiltekið mínútu!

Takk fyrir okkur og verið bless,

S_HETTE og D_HETTE.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.11.2004 14:23:28 / D_hette

bekkpressur..verkfæri djöfulins

djöfulsins helviti.....er buin ad vera með hasssperrrur síðan í keppninni ogurlegu. Get varla lyft upp kaffibolla an þess að kveinka mer......þessir voðvar sem voru notaðir i bekkpressunni hafa lika ekki verið notaðir síðan á Eiðum '77....þessar hasssperrur gætu einnig verið merki um kolkun....sussss...og eg er enþá föst i bandaríska lyklaborðinu...KÖLKUN...var i þessum töludum orðum að stokkva  innaleigu nidra BSI eftir ansi godan og mikin hadegsiverð á Stælinum með leigugæjunum þar sem ég svolgraði double cheeseburger með frönskum á ljóshrada eins og maggi orðaði það.

lalalalalala..ekkert ad gera niðri vinnu like always..buin að skoða allt sem til er a netinu...lesa öll blöð afturabak og afram og tok meira segja uppa þvi að þrifa i leiðindunum minum..einnig buin ad reyna ad downloada gomlu jurovisjion lagi sem eg var ad fa a heilan...sem er einhvern vegin svona...in everyway that i can i give u all my looovveee....með herna tyrknesku space trek war konunni...og er nuna bara að bida eftir að  Keli Sætikall og Maggi Travolta komi ad stytta mer stundir. En þangað til er öllum gestum og gangandi boðið i kaffi og kannski kleinur(ef their koma með sjalfir)...eg hellti neblega uppa 60 litra af kaffi i morgun sem enginn drekkur....gerði það fyrir frakka helvitis pussurnar sem ætluðu ad koma um 11 en eru ekki enn kominr....arrrggg....je deteste le francaise

man ekki hvað meira eg ætladsi ad segja

blessssss


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2